Þórhildur er fædd í Reykjavík 13 feb. 1971.

Útskrifaðist frá Menntaskólanum í Reykjavík 1991. Þá lá leiðinn til Þýskalands og sjóndeildarhringurinn víkkaður. Hún var Au Pair í Þýskalandi hjá sex manna fjölskyldu í Söllingen sem er 6000 manna þorp í nágrenni við Karlsruhe í S-þýskalandi. Árið 1992 hóf hún nám við Goldschmiede mit Uhrmacherschule í gullborginni Pforzheim í Þýskalandi. Hún stundaði þar nám til 1994 en þá kom hún til Íslands og var í verknámi hjá Jóni Sigurjónssyni (Jón og Óskar Laugavegi ) í eitt og hálft ár. Hún lauk Sveinsprófi í Þýskalandi árið 1996. Þórhildur var meðlimur í Gallerí Hnoss á Skólavörðustíg árin 1996 til 1998. Hún er einnig lærður leiðsögumaður og hefur starfað við það á sumrin síðan 1995 með alhliða leiðsögn fyrir þýskumælandi hópa. Hún hefur verið sjálfstætt starfandi gullsmiður síðan 1996 með sitt eigið verkstæði í Reykjavík

  Hlutir eftir Þórhildi